E inhverjum dela frá fornöld er um að kenna að í öllum Íslendingum er þetta-reddast genið sem hefur sannað sig sérdeilis vel gegnum tíðina og þá ekki síst í september 2008. En landinn vill gleyma að á erlendri grundu þekkja menn lítt til þessa veganestis og margt það sem átti að reddast gerði það alls ekki þegar verst stóð á.

Þetta reddast heilkennið dugar oft lítt utan landsteinanna.
Hér að neðan er nokkur atriði sem geta öll á svipstundu breytt hinu langþráða fríi í hreina martröð. Ekkert af neðangreindu „reddast“ neitt nema með fyrirhyggjusemi.
♥ Að gleyma vegabréfinu > Ansi margir eru á síðustu stundu með að verða sér úti um nýtt vegabréf eins og sést best á útgáfu hraðvegabréfa hjá sýslumannsembættum landsins. Slíkt tekur tvo til þrjá daga í stað viku eða tveggja og þarf að greiða sérstaklega fyrir. Öllu verra er svo að hafa gleymt vegabréfinu heima og átta sig á því í Leifsstöð með 30 mínútur í flug.
♥ Við höfum nægan tíma > Eins leiðinlegir og flugvellir geta verið er ívið skárra að hanga þar í tvær, þrjár klukkustundir en að vera á síðustu stundu í flug. Ritstjórn Fararheill veit um fólk sem mikið ferðast en lætur nægja að mæta í Leifsstöð 30 mínútum fyrir flug. Það hefur gengið upp en eitt sprungið dekk á Reykjanesbrautinni getur breytt því fyrr en síðar.
♥ Húrrandi drykkja > Það þekkja allmargir Íslendingar sem orðið hafa ofurölvi erlendis að þar er ekki alveg jafn óhætt að vera í því ástandi og hér á landi. Kófdrukkinn mann er auðvelt að blekkja, ræna og jafnvel lemja ef viðkomandi finnur sig á röngum stað í einhverri borginni eftir miðnætti. Og löggæslumenn víða löngu hættir að kippa sér upp við væl í ferðafólki.
♥ Hótelið ekki alveg eins og í bæklingnum > Engum á að koma á óvart að ferðaskrifstofur skreyta hótel sín og gististaði oft fleiri fjöðrum en tilefni er til með sama hætti og einhleypt fólk minnist lítið á galla sína á stefnumótasíðum. Aldrei hefur verið einfaldara að ganga vel úr skugga um að allt sé eins og það kemur fram í bæklingum eða á vefsíðum ferðaskrifstofanna gegnum netið. Það kemur í veg fyrir leiðindi þegar ferðin er hafin.
♥ Veðrið er alltaf yndislegt > Það hefur aðeins breyst hin síðari ár en lengi vel héldu Íslendingar aldrei til Kanaríeyja eða annarra heitari staða með nokkuð nema þunna boli og stutt pils eða stuttbuxur. Trúin á súpergott veður alltaf til staðar og hitt reddast. Þeir hinir sömu verða því steinhissa þegar þeir verða vitni að því persónulega að á Kanarí eru aðeins 65 skýlausir dagar að meðaltali ár hvert. Tenerife aðeins skárri með 93 skýlausa daga árlega. Óvitlaust að henda í töskuna einum regnjakka eða svo.
♥ Sýna heimamönnum óvirðingu > Það kann að vera fyndið að sjá herskara búddamunka í skær-appelsínugulum fatnaði sínum þvælast um í borgum Asíu. Eða hoppa kæruleysislega á milli steinklumpanna til minningar um fórnir gyðinga í Seinni heimsstyrjöldinni í Berlín. Hvorugt mun þó falla vel í geð heimamanna og gæti verið ávísun á veruleg leiðindi og jafnvel eitthvað verra en það.
♥ Fíflast í flugvallarstarfsmönnum > Tollverðir víðast hvar eru húmorslausir þegar kemur að skrýtlum um allt þetta ólöglega sem þú ert með í töskunni. Það húmorsleysi getur útskýrt hvers vegna fimm mínútum síðar þú ert nakinn í litlu herbergi með glennta fætur fyrir framan tvo tollverði með bláa hanska. Sömuleiðis eru sprengjubrandarar ekki í uppáhaldi hjá flugliðum og líklegt að þú verðir fyrr fjarlægður úr vélinni en að þú komist á áfangastað.
♥ Ferðatryggingar ekki þess virði > Sannarlega er reyndin sú að í 99 prósent tilvika eru sérstakar ferðatryggingar til lítils gagns þar sem ekkert kom upp á í ferðinni. En á móti kemur að það tæmir auðveldlega veskið og gott betur að koma slösuðum ættingja eða vini úr Himalajafjöllum og á almennilegt sjúkrahús ef alvarlegt slys verður.




