A f þeim fjórum spænsku eyjum sem saman kallast Baleares eyjur þekkja ábyggilega flestir Íslendingar Mallorca og margir hafa heimsótt og djammað frá sér allt líf á Ibiza. Öllu færri hafa dvalið á eynni Menorca sem er lengst til norðurs af eyjunum fjórum.

Næturklúbbur inni í klettaskútum við snarbratta klettalengju á Menorca. Mynd MontaNito

Næturklúbbur inni í klettaskútum við snarbratta klettalengju á Menorca. Mynd MontaNito

Á þeirri eyju er einhver gæjalegasti næturklúbbur landsins og það mætavel falinn. Sá heitir Cova d´en Xoroi, sem útleggst sem Xoroi hellir, og er reyndar ekki bara næturklúbbur heldur og matsölustaður og bar á milli matmálstíma.

Það sem gerir þennan ágæta stað sérstakan er staðsetningin í bröttum klettum á suðurströnd Menorca fyrir neðan smábæinn Cala´n Porter.

Ekki aðeins er útsýnið almennt fallegt og hrikalegt heldur þykir hvergi betra að fylgjast með sólarlaginu en hér. Staðurinn er hálfur inni í stórum helli og hálfur á klettanibbum sem kannski henta illa lofthræddu fólki en fyrir hina er engin spurning um stopp hér sé fólk á annað borð á ferð um Menorca. Sem reyndar telst ólíklegt enda aldrei verið boðið upp á ferðir þangað frá Íslandi og það breytist varla úr þessu.

Reyndar vilja sumir meina að Cova d´en Xoroi sé dæmigerð ferðamannagildra og vissulega þarf að punga út rúmum þrjú þúsund krónum fyrir aðgang seint á kvöldin auk þess sem drykkir eru dýrari en gengur og gerist. En staðsetningin er jú algjörlega einstök og óhætt að láta sig hafa örlítil aukaútgjöld þess vegna. Allavega ef marka má myndirnar.