H ún er einhvern veginn afskaplega sterk ímyndin af Sviss sem land hárra, fallegra fjalla, fjólublárra Milka kúa að ógleymdum stórkostlegum fjallakofum sem í búa jóðlandi bændur og búalið.

Ímyndin sú er meira eða minna sönn ef frá er talin fjólubláa Milka kúin sem vitaskuld var aðeins auglýsing fyrir mjólkursúkkulaði sem jú Sviss er líka afskaplega þekkt fyrir.

Sviss verður ekki betur lýst en með myndum á borð við þær hér að neðan. Neðst má finna kort af umræddum stöðum.

  • Jungfrau Aletsch
Þó Alparnir séu víða stórkostlegir ber Jungfrau Aletsch svæðið af með sínum mikilfenglega Aletsch jökli. Svæðið er á Heimsminjaskrá fyrir stórkostlega náttúrufegurð

  • Lauterbrunnen, Bern
Iðagrænn Lauterbrunnen dalurinn er mikilfenglegur með snarbratta kletta á alla kanta. Mynd Pearson Doug

  • Château de Chillon, Veytaux
Chillon kastalinn á bökkum Léman vatns skammt frá Montraux þykir með þeim stórkostlegri og leyndardómsfyllri köstulum sem fyrirfinnast í veröldinni.

  • Bern
Meðal heimamanna leikur enginn vafi á hvaða borg landsins ber af í fegurð. Það er Bern og auðvelt að sjá hvers vegna.

  • Matterhorn, Zermatt
Helsta náttúrulega tákn Sviss er Matterhorn tindurinn mikilfenglegi. Hann er þó ekki hæsti tindur landsins.

  • Massa Belalp, Blatten
Massa Belalp gljúfrið er eitt kostulegra upplifana í Sviss. Gljúfrið nýtur mikilla vinsælda hjá göngu- og ævintýrafólki

  • St.Leonard, Valais
St.Leonard er sérstakur staður. Það er lengsti vatnshellir Evrópu og hægt er að sigla um hann eina 300 metra.

  • Titlis ísgöngin, Engelberg
Ekki kristnihald undir jökli heldur ganga undir jökli. Ganga má löng ísgöng 20 metra undir yfirborði Titlis jökulsins nálægt Engelberg

  • Gstaad, Saanen
víða í heiminum eru betri aðstæður til skíðaiðkunar en í Sviss. Skipta fyrsta flokks skíðastaðir hundruðum

View Stórkostlega Sviss in a larger map