M áltækið að fara yfir lækinn eftir vatninu á sjaldnar betur við en þegar rætt er um Færeyjar. Þessi fallegi eyjaklasi hvers íbúar líta mikið til upp til Íslands og Íslendinga og taka ávallt vel á móti öllum hefur því miður sjaldan verið á dagskrá íslenskra ferðalanga nema þá helst þeirra sem fýsir að drekka sig fulla á Ólavsvökunni ár hvert.
Þó er fjölmargt að sjá og skoða á eyjunum og þótt golfararar fari þangað í fússi, enda engir golfvellir hér, þá er þetta himnaríki fyrir göngufólk og náttúruunnendur. Eins og meðfylgjandi myndir bera með sér.
- Tröllanes, Kalsey

Kalsey er ein af tignarlegri eyjum í Færeyjum. Þar eru snarbrattar hlíðar enda á milli á eynni þar sem búa 150 manns í fjórum litlum byggðum. Mynd ancji
- Klakksvík, Borðey

Það er auðvelt að fyrirgefa þeim sem halda að þeir séu á Vestfjörðum á Íslandi en ekki í Klakksvík á Borðey. Mynd anjci
- Stapatá, Kalsey
- Litla Dímún

Eina eyjan af þeim stærri á Færeyjum öllum sem er óbyggð er Litla Dímun og skiljanlega. Mynd WildVanilla
- Viðareiði, Viðey

Einmana hvítt bænahús myndar sterka andstæðu við dökkt grjótið í hlíðum Viðeyjar Færeyingar. Mynd polandeze
- Þinganes, Straumey

Þinganes er eins og nafnið ber með sér þingstaður Færeyinga og hér er færeyska lögþingið til húsa. Mynd arne.list
- Tindhólmur, Vágum
- Saksun, Straumey

Draumastaður göngufólks. Hvert sem farið er er næsta ósnortin náttúran og fögur fjallasýn. Mynd Stig Nygaard
- Klakksvík, Borðey
- Gásadalur, Vágum








