Við hér hjá Fararheill bent á þetta um tíu ára skeið eða svo. Í hvert sinn sem þú kaupir gistingu gegnum hið geysivinsælu bókunarvél Booking ertu að styðja feit og mikil skattsvik. Nú hafa stjórnvöld á Ítalíu loks lesið greinar okkar.

Fjárfestar voða hrifnir af Booking.com. En það er ástæða fyrir því
Það er auðvelt að verða stór og rík ef ekki þarf að greiða skatta og skyldur. Þess vegna á Apple sex þúsund milljarða í bankanum og þess vegna eru ítölsk stjórnvöld loks að rannsaka til hlítar hvort hið vinsæla Booking hafi sleppt því að greiða krónu í skatta um FIMM ÁRA SKEIÐ!
Að því er fram kemur í Financial Times í vikunni reyna bláfátæk ítölsk stjórnvöld nú að ráða í hvers vegna Booking.com hefur ekki greitt eina evru í skatta um sex ára skeið eða svo. Ítalska ríkið þannig orðið af vel yfir tuttugu milljörðum króna ef satt reynist.
Sem aftur er næstum klink miðað við rannsókn franskra skattyfirvalda fyrir tveimur árum síðan. Rannsókn sem leiddi í ljós hugsanleg skattalagabrot upp á FIMMTÍU MILLJARÐA KRÓNA!
Fátt kemur á óvart hér. Móðurfyrirtæki Booking.com er bandaríska fyrirtækið Priceline sem geymir allt sitt fé á aflandseyjum í Karíbahafinu og hefur gert um ár og aldir. Með öðrum orðum: greiðir enga skatta.
Löglegt kannski en hundrað prósent siðlaust. Þjóðráð að hætta öllum viðskiptum við þetta skítabatterí…







