Ekkert skal fullyrt en ýmislegt bendir til þess að Icelandair hafi þegar hækkað fargjöld sín töluvert með tilliti til komandi andláts Wow Air. Í öllu falli kostar 130 prósent meira að fljúga með Icelandair til Parísar í maí en með franska lággjaldaflugfélaginu Transavia.

París á döfinni? Þá ráð að gera verðsamanburð.
Vitum ekki með ykkur en við hér ekki að vinna baki brotnu í leiðinlegri vinnu til þess eins að kasta peningum á glæ. Sem er nákvæmlega það sem þú gerir ef þú ætlar til Parísar með Icelandair í maímánuði.
Allir geta gengið úr skugga um þetta með vafri á netinu en eitt heldur ömurlegt dæmi tekur til nettrar helgarferðar 23. – 27. maí næstkomandi. Icelandair flýgur þær dagsetningar til Charles de Gaulle flugvallar og ódýrasta fargjaldið án tösku kostar þegar þetta er skrifað 39.865 krónur!!!
Ókei, hljómar kannski ekki svo fráleitt. Innan við 20 kallinn að skoppast hvora leið fyrir sig.
En svo kíkjum við á vef lággjaldaflugfélagsins Transavia sem flýgur milli Keflavíkur og París Orly flugvallar nokkuð reglulega. Þá fáum við flugið út og heim aftur án tösku niður í – haltu þér fast – 16.989 krónur!!!
Það er 130 prósenta verðmunur á sömu vörunni. Jú, vissulega flýgur Icelandair til de Gaulle og það snemma dags og vissulega flýgur Transavia til Orly og það um hánótt. En þá má deila um hvort betra sé að mæta til Parísar um hádegisleytið eða eldsnemma morguns.
Það allavega þarf ekkert að deila um hvor aðili er að bjóða okkur betur sé aðeins litið á verðið. Franska flugfélagið pakkar því íslenska saman og í báðum tilfellum er ekkert innifalið. Verðmunurinn eykst í þessu tilfelli ef fólk ætlar að rúlla töskudruslu með í túrinn.
Vissulega flýgur Wow Air opinberlega ennþá til Parísar og býður sæmileg fargjöld. En það fyrirtæki á skammt eftir þannig að við mælum ekki með kaupum hjá þeim.







