E itt það allra versta við ferðalög nútímans er að Palli er ekki lengur einn í heiminum. Milljónir manna eru á faraldsfæti á hverjum einasta degi ársins og oft á tíðum fá þúsundir eða tugþúsundir sömu flugu í höfuðið á sömu stundu.

Hér má sjá að þokkalega rólegt er að gera á þessum stað milli þrjú og fjögur og því þjóðráð að velja þann tíma til heimsóknar.

Hér má sjá að þokkalega rólegt er að gera á þessum stað milli þrjú og fjögur og því þjóðráð að velja þann tíma til heimsóknar.

Eflaust kunna allir sögur af hræðilegum biðröðum á vinsæla staði erlendis. Við höfum lent í 90 mínútna biðröð við MOMA í New York, áttatíu mínútna bið á flugvellinum í Doha og rúmlega sextíu mínútna röð við Louvre í París. Svo ekki sé minnst á þriggja klukkustunda setu í leigubifreið á leið inn í Kaíró vegna umferðarteppu.

Biðraðir eru nokkuð eðlilegur hluti nútímans en sá tími sem fer í bið í tímabundnum ferðalögum erlendis virðist einhvern veginn alltaf verri en að bíða hér heimavið.

Sem er ástæða þess að við fögnum mjög fyrirbærinu Google Now sem bæði finnst á netinu og sem app. Gegnum það finnst nokkuð sem kallast Popular Times og þar má sjá á augabragði hvenær mesta örtröðin er á næsta Starbucks kaffihúsi í Hue í Víetnam, lengsta röðin inn í Sagrada Familia kirkjuna í Barcelóna eða hvort troðið sé af fólki í Þjóðarbókhlöðunni í Reykjavík. Eða hvaða stað annan þegar fram líða stundir. Vopnuð þeim upplýsingum er lítið mál að nýta tímann betur á ferðalögum og jafnvel heimavið líka í framtíðinni. Nema náttúrulega allir hugsi eins. Þá fellur þetta um sjálft sig 🙂

Mínusinn við þetta fyrirbæri, svona fyrir þá sem hafa áhyggjur af öllum þeim upplýsingum sem tæknirisarnir hafa nú aðgang að, er að Google geti vitað æði nákvæmlega hvernig rekstur fyrirtækja gengur byggt á þeim upplýsingum sem þeir safna. Og hver veit nema Google noti þær upplýsingar þegar fram líða stundir ef þeir gera það ekki nú þegar. Ekkert endilega í jákvæðum tilgangi.