S allaauðvelt að fá nóg af skemmtunum í Orlandó í Flórída. Þar enda ekki svo mikið við að hafa ef skemmtigarðarnir eru ekki að heilla. Það er til lausn á því í tveggja stunda fjarlægð.

Nafn St.Augustine ekki á allra vörum þegar kemur að Flórída enda sá bær tiltölulega lítill og örlítið utan þjónustusvæðis skemmtiiðnaðarins í fylkinu.

Ljúfur gamall miðbær og afar fallegar strendur prýða St.Augustine.

En bærinn státar af meiri merkilegheitum en nokkur annar staður í Bandaríkjunum öllum: Þetta er elsti bærinn í landinu og reyndar elsti bærinn í Norður-Ameríku allri!

Staðurinn komst í sögubækurnar strax árið 1565 eða aðeins um 70 árum eftir að spænskir „fundu” álfuna. Þá fékk einn þeirra nóg af ferðabakteríunni og þjóðarmorðum og settist hér að.

Enn eimir af spænskum áhrifum í bænum þó vissulega sé æði mikið hér túristavætt út í eitt. Gamli bærinn þó yndislegur og mjög evrópskur og hér er annað af tveimur varnarvirkjum sem fyrirfinnast í Bandaríkjunum. Auðvitað nóg af þeim að sjá í okkar eigin álfu en forvitnilegt að sjá slíkt fyrirbæri vestanhafs.

Strendurnar hér eru eins og annars staðar í fylkinu alveg fyrirtak og gnótt ágætra veitingastaða og gististaða. Alveg kjörinn rúntur og eða dvalarstaður í dag eða tvo. Túr hingað tekur rétt rúmlega tvær stundir frá Orlandó.