M itt í iðnaðarhverfinu Sant Andreu í Barcelóna, töluvert fyrir utan hefðbundnar ferðamannaslóðir, er að finna íbúðablokk eina stóra og mikla sem lítt lætur yfir sér. Þvert á móti er af henni sterkur austantjaldsfnykur þegar að er komið.

Blokkin er frá árinu 1933 en í einni af þeim 200 íbúðum sem þarna eru er að finna ansi undarlegt safn.

Einhver kynni að halda að það safn sé komið til ára sinna en það er öðru nær. Safnið/íbúðin opnaði þann 20. mars 2012 eftir margra ára endurbætur. Safnið er staðsett í íbúð 1/11 og safnið er íbúðin sjálf.

Þar má ganga lengi um án þess að átta sig á hvers vegna yfirvöld í Katalóníu telja blokk þessa nógu merkilega til að teljast til héraðsminja.

Ástæðan er þó sú að blokkin var hönnuð og byggð í svonefndum rökhyggjustíl þar sem ekkert átti að vera aukalega annað en brýn þörf var á. Var enda blokkin ætluð þeim er lægst höfðu launin en áttu engu að síður skilið þak yfir haus og helstu nauðsynjar.

Sem sagt: safnið er tómleg íbúð í gráu hverfi í skemmtilegri borg og án þess að vera með mikla sleggjudóma má færa rök fyrir að safnið heilli enga nema spinnegal áhugafólk um spænska byggingarstefnu á fyrri hluta síðustu aldar.

Nánari upplýsingar hér fyrir þá sem áhuga hafa að vita meira.