V íða erlendis gefst ferðafólki, gegn vænni greiðslu, kostur á að busla með höfrungum og ekki þarf að efast um að þeir aðilar þéna vel enda afar heillandi að synda með eða klappa þessum yndislegu dýrum í návígi.

Frábært að synda með höfrungum en ekki eins frábært fyrir dýrin sjálf. Mynd Ian Usher
En nú hafa vísindamenn uppi varnaðarorð og benda á að höfrungar í náttúrunni noti daginn að mestu til að sofa og næturnar til að veiða og þvælast um. Ágangur ferðafólks sé slíkur að höfrungarnir fái því ekki þann svefn sem þeir þurfi og eins og gefur að skilja hefur það neikvæð áhrif á dýrin ekki síður en okkur mannskepnuna þegar við fáum ekki nógan svefn.
Þetta á ekki aðeins við um þau dýr sem eru í lokuðum laugum eða flóum heldur og höfrunga sem halda til við strendur vinsælla ferðamannastaða. Til að mynda þykir sannað að höfrungar við Hawai-eyjar hagi sér nú öðruvísi en venjulega sökum straums kajakræðara og bátsferða með ferðamenn við eyjarnar alla liðlanga daga.
Þetta er miður því engum leynist að höfrungar eru með félagslyndari dýrum heims og fjölmörg dæmi eru um að þeir njóta félagsskapar mannfólks að vissu marki. En það væri töluvert meira miður ef það verður til að breyta hátterni þeirra. Það getur ekki verið gott mál til lengri tíma.




