K anadamenn almennt afturhaldsseggir par exellens svona í ljósi sögunnar og gera fátt nema Kani eða Breti taki fyrsta skrefið. En varðandi kannabis eru Kanadamenn merkilega framarlega.

Viskí, romm og gin. Allt blandað nettri kannabisblöndu og smakkast súperprímavel 🙂

Ein úr ritstjórn var í Quebec-fylki Kanada nýverið og reyndi þar í fyrsta skipti kannabisblandaða drykki.

Kannabis, fyrir þau ykkar sem ekki þekkja til, er náttúruleg vara úr náttúrulegum plöntum, og eina ástæða þess að stöku efni úr plöntunni atarna eru bönnuð er innihaldslaus þvæla frá fávísum Bandaríkjaforsetum sem enn fávísari vinátturíki tóku upp án þess að kveða upp eina stunu. Hvað þá gagnrýni.

Virk efni í kannabisplöntunni eru róandi á lifandi manneskjur ólíkt áfengi eða mörgum þeim lyfjum sem lögleg heita og eiga að gera allt betra. Í tilvikum er þó hægt að finna sterkara kannabis sem veldur gleði og skemmtilegheitum á tuttugu sekúndum sléttum. Samanber hversu margir detta í geðveik hlátursköst eftir að steypa góðri jónu frá Kristjaníu.

Trixið er að þekkja muninn á því sem flokkast sem THC annars vegar og CDB hins vegar. CDB er samheiti yfir þann hluta plöntunnar sem EKKI veldur neinum andlegum áhrifum. Fjölmargir drykkir í verslunum og börum Kanada bjóða upp á slíkt.

Drykkir með THC hins vegar valda áhrifum. Ekkert róttækt en nóg til að fólk léttist í skapi og lund og í allra verstu tilvikum dettur í geðveikt stuð. Hræðileg hugmynd ekki satt?

Til marks um muninn þá hefur sala drykkja með THC í Kanada aukist um 75 prósent frá því að kannabis var gert löglegt 2018. Sala drykkja með CDB hefur aukist á sama tíma um 17%.

Látum lögleysuna sums staðar liggja milli hluta að sinni. Ástæðan sú að hægt er að fá viskí, bjór, gin og jafnvel blandaða drykki með kannabis á næsta bar í Kanada. Fyrir utan auðvitað að alls staðar í landinu má kaupa nokkur grömm og reykja svona ef sá gállinn er á fólki. Allt hellöglegt svo lengi sem fólk hefur náð átján ára aldri (eða 21. árs aldri í Qubec.)

Hér fjórar tegundir af kannabisblönduðum drykkjum sem við prófuðum á ferðinni nýverið og reyndust helsendis frábærir. Mælum fullum hálsi með þeim öllum.

A) THC Citrus Water  >  Þessi drykkur fæst bæði í sumum kjörbúðum og á börum. Þetta í grunninn aðeins kolsýrt sítrusvatn en með dögg af virku efni kannabisplöntunnar. Ekki ein einasta kannabislykt og helsendis frískt og frábært svona ef þú ert að dúlla þér útivið undir sólinni.

B) Happy Hibiscus Tree  >  Annar drykkur sem fæst í dósum í mörgum verslunum er þessi hressandi tedrykkur.  Já, við sögðum tedrykkur. Te sallafínt fyrir líkamann og ekki skemmir agnarögn af kannabis í og með. Prófaðu bara og reyndu að telja okkur trú um að það sé rangt 🙂

C) Pale Haze THC  >  Lagerbjórar valda flestum ákveðnum léttleika svona ef hart er teygað. Þessi veldur súper-léttleika eftir aðeins tvo til þrjár umferðir. Virkt efni kannabis í bjórnum og þú komin á ský á innan við hálftíma á barnum. Ekkert sérstaklega neikvætt við skýin. Það er jú það sem biblían prédikar að þú gerir 24/7 eftir dauðann. Fín upphitun.

D) Deep Space  >  Þessi fæst ekki alls staðar enda skrambi mikið blandaður með THC. Það útskýrir nafnið því fólk fær bæði alkóhól og sterkt kannabis beint í æð. Sem gerir flesta skakka á 30 mínútum eða svo en ef þú ert vön/vanur kannabis er þetta hreint ágætur drykkur. Svona til að byrja með…

Allir ofangreindir drykkir fengust á bar í Quebec-fylki vandræðalaust. Þrír af fjórum drykkjunum fást í tilteknum kjörbúðum.

Njóttu vel en gættu þín vel. Kannabis fer ekki alltaf vel ofan í alla.