Dagatalið

Afamia uppskeruhátíðin

  26/09/2010No Comments

Kannski er það ekki á allra vitorði en vín frá Kýpur þykja mörg hver ákaflega góð enda ræktuð við ágætar aðstæður á þessari grösugu eyju í Miðjarðahafinu. Allra besta vínræktarsvæði landsins er Koilani og þar fer fram uppskeruhátíð vínberjabænda ár hvert þann 6. og 7. október.


View Larger Map

Gestir eru velkomnir og þar er hægt að taka þátt í skemmtun heimamanna, bragða vín og annað góðgæti frá héraðinu og njóta lífsins í fallegu umhverfi þar sem alla jafna sést lítið til ferðamanna. Markaðir eru starfræktir og leiðist fólki er til margt verra en taka bíltúr um sveitir Kýpur.