
Útsýn frá einum af fjölmörgum yndislegum smábæjum við Genfarvatn.
Genfarborg sjálf er að okkar mati lakasta borg Sviss til heimsóknar jafnvel þó þar sé ekkert leiðinlegt að vera.
En hún bliknar ekki aðeins við hlið annarra borga á borð við Basel, Lausanne, Bern eða Zürich heldur og við hlið margra þeirra smærri bæja og þorpa sem finnast í fjöruborði Genfarvatns hvort sem er Svisslandsmegin, norðurhlutinn, eða Frakklandsmegin, suðurhlutinn.
En eitt kemur kannski lúmskt á óvart taki fólk liðlega 100 kílómetran langan rúntinn meðfram Genfarvatni, Genfersee á þýsku eða le Léman á frönsku, Svisslandsmegin. Hinir undarlegustu minnisvarðar eða minnismerki um mikilmenni sögunnar finnast á ótrúlegustu stöðum.
MONTREAUX
Til dæmis er einungis eina styttu í raunstærð að finna á bakkanum í hinum þekkta bæ Montreaux. Hvaða líkneski skyldi það nú vera? Jú, Freddie Mercury, fyrrum söngvari Queen, af öllum mönnum. Það kemur aðeins á óvart ef fólk hefur ekki sett sig inn í lífshlaup söngvarans þegar hann var á lífi. Hann bjó nefninlega hér í bæ og hér voru teknar upp einar sex hljómplötur Queen. Hann lést hér líka en það mikið leyndarmál hvar hann er grafinn. Annar velþekktur einstaklingur sem hvílir hér í bæ er rússneska skáldið Vladimir Nabokov sem einnig gerði Montreaux að heimabænum fyrir andlátið.
TOLOCHENAZ
Tolochenaz heitir eitt þorpið við bakka Genfarvatns og fer lítið fyrir. Fátt auðveldara en aka framhjá án þess að gefa staðnum svo mikið sem augngotu. En ef þú álpast til þess gætirðu séð flennistórar myndir af leikkonunni Audrey Hepburn málaðar á veggi allnokkurra bygginga hér. Álpist þú inn í bæinn finnurðu líka afsteypu af andliti leikkonunnar á aðaltorgi bæjarins. Ef þú fyrir forvitnis sakir spyrst fyrir um þennan mikla áhuga á leikkonu sem lést fyrir tæpum þrjátíu árum, færðu að vita að hér bjó Hepburn til dauðadags frá því að hún hætti að leika í kvikmyndum. Stór húseign hennar er enn til staðar hér með öllu sem þar var þegar hún lést 1993 en þangað inn fær enginn að fara.
BURSINS
Líklega þarf að kafa nokkuð djúpt í minni eldra fólks til að muna eftir kvikmyndastjörnunni Peter Ustinov. En einn úr ritstjórn þekkti kappann strax á ljósmynd sem fannst á bæjarkránni fyrir nokkrum árum. Undarleg mynd á bar en eftir samtal við barþjóninn kom í ljós að Ustinov dvaldi hér löngum stundum í fríi og bjó hér þegar hann lést. Hann líka grafinn í kirkjugarði bæjarins.
LAUSANNE
Það er, okkur vitandi, enginn sérstakur minnisvarði um þessa framúrskarandi konu í borginni Lausanne. En í grafreit borgarinnar hvílir hin eiturfræga Coco Chanel hin franska hvers nafn er enn á annarri hverri flík og fylgihlutum sem selt er þeim er peninga eiga til að eyða. La Grande Mademoiselle, eins og Coco var gjarnan kölluð, skildi eftir sig feita arfleifð sem enn skilar ættingjum nægum peningum árlega til að kaupa Ísland sirka sjö sinnum.
VEVEY
Hvað okkur hér hjá Fararheill varðar þá er aðeins einn einstaklingur sem við myndum mögulega gera okkur sérstaka ferð til að votta virðingu okkar í beinni. Sá einstaklingur er snillingurinn Charlie Chaplin og ef fólk eyðir dagsstund í bænum Vevey færðu fljótt að vita að snillingurinn atarna hvílir hinsta svefni í kirkjugarði bæjarins ásamt síðustu eiginkonu sinni. Reyndar hvílir hér önnur gömul kvikmyndastjarna því nokkrum skrefum frá leiði Chaplin má finna leiði James Mason en sá var í aðalhlutverkum í fjölmörgum þekktum eldri kvikmyndum.
Sú staðreynd að hér hvíla svo margir heimsþekktir einstaklingar á tiltölulega litlu og óþekktu svæði í ferðalegu tilliti er bónus í kladdann ef fólk er á þessum slóðum. Það verður hins vegar að koma kýrskýrt fram að eina ástæða þess að fræga fólkið settist að hér og sest enn hér að, er sú að í Sviss greiðir þú litla sem enga skatta. Allt þetta fræga fólk því aðeins að koma fjármunum undan.





