
Þú heyrir aldrei neitt um bæinn Struer í Danaveldi og þaðan af síður annars staðar. Mynd nl.pinterest
Ekki nokkur maður nema stórelskendur Danmerkur villast inn í Struer. Þetta rétt slefar í að vera bær samkvæmt dönskum stöðlum með sína tæplega tíu þúsund íbúa en það er miklu meiri þorpsbragur á öllu hér ef fólk dvelur hér sólarhring plús. Allir þekkja alla, flestir vinna hjá sama aðilanum og bæjarkráin er samfélagsheimilið að vinnu lokinni alla daga ársins.
Sem sagt; dásemdis ljúfur staður ef þú býrð hér en kannski öllu minna spennandi fyrir erlenda ferðalanga. Það er að segja ef frá er talin ein staðreynd.
Sú staðreynd, og töluvert merkileg að okkar mati, er að það er frá þessum agnarlitla bæ sem ein heimsfrægasta útflutningsvara Danmerkur kemur: Bang & Olufsen.
Jamms, þú last þetta rétt. Eitthvert fremsta tæknifyrirtæki heims á rætur sínar að rekja til þess sem er bókstaflega Kópasker Danmerkur.
Stofnendurnir Peter Bang og Svend Olufsen fæddust og bjuggu báðir í Struer þegar fyrirtækið hóf að vekja athygli á alþjóðavísu. Þar er enn staðsett eina framleiðsluverksmiðja fyrirtækisins og er vitaskuld þungamiðja bæjarsins. Sextíu prósent alls starfandi vinnuafls í bænum vinnur hjá B&O þegar þetta er skrifað.
Ekki þar fyrir að bærinn er enn töluvert krummaskuð og það getur ritstjórn Fararheill vottað því einn okkar bjó í grenndinni um átta ára skeið hér fyrir ekki svo löngu síðan. Bæjarbúar vinsamlegir eins og gengur en hér fátt við að hafa og engin ósköp að sjá eða upplifa.
Það samt þess virði að keyra hingað ef þú finnur þig á þessum annars fáförnu slóðum Danmerkur.




