V ið gerum fastlega ráð fyrir að missa alla þrjá af þeim þremur kjósendum Miðflokksins sem enn „læka” Fararheill með þessari grein en okkur slétt sama. Einn allra besti upphitunarstaðurinn í Köben fyrir gott næturdjamm er þessi líka húrrandi hommabar við Kattesundet.

Gamall hommabar er einn allra besta stoppið í Köben áður en þú ferð alla leið á djamminu. Mynd Centralhjornet.

Kattesundet hljómar eins og eitthvað sjómannapleis lengst í rassi á kajanum. En það hreint ekki raunin. Kattesundet er hliðargata við Strikið fræga sem er jú miðpunktur alls í Köben. Í þessu tilfelli Kattesundet númer 18.

Þar finnur fólk hommabarinn Centralhjørnet og ekki sakast við okkur þó við köllum þetta hommabar því það gera þeir sjálfir líka. Eigendurnir segja líka að þetta sé elsti hommabar heims. En hér auðvitað um að ræða bar tileinkaðan samkynhneigðum en annað fólk mjög velkomið líka.

Hér er príma að starta góðu kvöldi því allir hér inni eru súpervinsamlegir, súper ligeglad, súper hygge og drykkir á barnum súper ódýrir á köbenskan mælikvarða. Eða hver slær hendi mót flöskubjór á 300 kall eða eðalgóðum mojito á 600 kall?

Ekki aðeins er þjónustan góð, drykkirnir ódýrir og stutt í aðra góða næturklúbba heldur og er staðurinn yfirleitt skrautlega skreyttur í hólf og gólf og þá sérstaklega yfir jólavertíðina þegar hér er nánast ekki þverfótað fyrir skringilegum skreytingum í hólf og gólf.

Enginn úr ritstjórn Fararheill samkynhneigð/-ur en öll fjögur sammála um að Centralhjørnet er frábær. Láttu á það reyna 😉