K rít er með allra ljúfustu áfangastöðum í Miðjarðarhafinu en því miður er ekki alltaf hægt að komast hingað á einfaldan hátt héðan af farsæla Fróni. Höfuðborgin Chania er ekki síðri en aðrir staðir á eynni og sú lumar á smá leyndarmáli.

Ef þú einhvern tímann finnur þig í höfuðborg Krítar er súperhugmynd að valsa um gamla bæinn. Skjáskot

Ók, ekki leyndarmál per se en nokkuð sem aðkomufólk veit almennt ekki af. Það sú staðreynd að gamli miðbær Chania er einn elsti miðaldabær heims sem enn stendur heillegur frá örófi alda að langmestu leyti.

Nú er ekkert gefið að aðkomufólk eyði tíma í höfuðborginni, sem telur þegar þetta er skrifað, 110 þúsund íbúa, enda margir strandbæir meira að heilla svona heilt yfir fyrir fölbleika bleiknefja frá ballarhafi. En ef þú gerir það er alls óhætt að rölta hægt um því önnur hver bygging í gamla bænum var byggð fyrir fimm til sex hundruð árum síðan.

Allmargar þær byggingar sem enn standa í Chania eru fimm til sex hundruð ára gamlar. Mynd Tripomatic

Ókei, önnur hver bygging kannski ýkjur af okkar hálfu en allavega stór hluti var fyrst byggður um það leyti sem Kólombus þóttist hafa uppgötvað Ameríku. Og tekist hefur að varðveita margar þær gömlu byggingar framar vonum. Með öðrum orðum: þær líta eins út í dag og þær gerðu árið 1500 eða 1600.

Borgaryfirvöld vilja meira að segja meina að gamli bær Chania sé elsti miðaldabær heims en eðlilega eru um það deildar skoðanir.

Í öllu falli er ráð að taka hádegisverð á einhverjum af þeim frábæru sjávarréttastöðum sem finnast við ströndina og taka svo strikið lóðbeint inn í gamla bæinn með það hugfast að flest hér var byggt þegar langa-, langa-, langa-, langa-, langa-, langa-afi þinn og amma hírðust í torfkofum heima á Fróni.

Það setur hlutina dálítið í samhengi ekki satt…