Ó k! Afskaplega fáir innlendingar sem þvælast heimshorna á milli til að upplifa mikið til það sama og hægt er að vitna í hlaðinu heimavið. En það líka einn plúsinn við ferðalög á fjarlægar slóðir; stundum fáum við bara risavaxið kúltúrsjokk og sums staðar er allt eins og heima á klakanum.

Svartar strendur Íslands vel þekktar á heimsvísu. Nema hvað þetta eru ekkert svartar strendur Íslands. Skjáskot

Ritstjórn heimsótt Rússland Pútíns nokkrum sinnum en eingöngu vesturhluta landsins. Sá hluti víðs fjarri því sem upplifa má austar í landinu eins og kannski gefur að skilja í landi sem þekur 1/8 af öllu landflæmi á hnettinum. Rússlandið jafn fjölbreytt og það er víðfeðmt.

Kamchatka er til að mynda eitt hérað sem tölulega fáir ferðamenn sækja heim enda lengra austur alls ekkert komist í þessu mikla landi.

Við hér á klakanum ættum kannski að vona að svo verði áfram vegna þess að meðfylgjandi myndband sýnir glögglega hversu svaðalega Kamchatka svipar til Íslands. Svo mikið raunar að við héldum um tíma að við værum að horfa á myndband frá okkar ylhýra föðurlandi.

Kamchatka travel from Эрнест Леонидов on Vimeo.