G óðu heilli fjölgar þeim óðum sem áhyggjur hafa af kolefnisspori sínu og sinna. Ekki veitir af enda fátt betra til að stytta líf og skerða heilsu en alvarleg loftmengun sem er jú staðreynd víðs vegar á jarðkringlunni.

Flugmiðinn kostar kannski engin ósköp en aðrar afleiðingar eru öllu verri.

Loftslagsnefnd Sameinuðu þjóðanna, IPCC, hefur metið það sem svo að flugumferð í veröldinni sé orsakavaldur tæplega fjögurra prósenta alvarlegra loftslagsbreytinga.

Þó flugvélaframleiðendur framleiði sífellt sparneytnari rellur þá fellur sá ágóði dauður niður því sífellt fleiri einstaklingar fljúga sífellt meira og því fer mengun af flugumferð stigvaxandi ár frá ári. Og það mat IPCC sem hefur alla tíð spáð eins varlega og framast er unnt.

Tæp fjögur prósent skipta litlu máli kann einhver að segja en það er hugsanavilla. Vænlegra að reikna út hvað hver rella fyrir sig, og þar af leiðandi farþegar innanborðs, láta frá sér. Sem dæmi um það:

• Koltvíoxíðmengun hvers farþega fram og aftur til Kaupmannahafnar frá Keflavík er hvorki meira né minna en 0.45 TONN.

• Koltvíoxíðmengun hvers farþega fram og aftur til Kanaríeyja frá Keflavík er hvorki meira né minna en 0.85 TONN.

• Koltvíoxíðmengun hvers farþega fram og aftur til Tel Aviv frá Keflavík er hvorki meira né minna en 1.11 TONN.

Jamms, tölurnar aðeins alvarlegri í þessu samhengi ekki satt? Ók, svo þú ert ekki viss um hvað tonn er raunverulega mikið? Þá ágætt að hafa hugfast að fullorðinn afrískur fíll vegur gjarnan kringum eitt tonn.

Um að gera að ferðast enda fátt betra fyrir sálina. En reynum öll að ferðast eins grænt og við getum. Þó ekki sé nema til þess að börn okkar og barnabörn geti vandræðalaust dregið andann eftir fimmtíu ár 😉

Viltu reikna út meira? Kíktu hingað.