V ið skulum bara viðurkenna það. Stór ástæða þess að okkur flest langar að ferðast út fyrir steina þessa lands er til að komast í fjölbreyttara úrval verslana erlendis sem jafnframt bjóða vörur á töluvert lægra verði en hér er raunin.

Nótt á topphótelum á Balí fæst alveg niður í þrjú til fjögur þúsund krónur ef bókað er með góðum fyrirvara.
Samtök verslunarinnar mega mótmæla til endaloka heimsins en staðreyndin er samt sem áður sú að þær eru vandfundnar verslanir erlendis þar sem ekki má gera mikið betri kaup en hér heima. Gildir þar einu hvort litið er vestur um haf eða austur og miðað við verðlag almennt en ekki á útsölutímum þegar vörur fást töluvert ódýrari en ella.
Ritstjórn hefur safnað saman upplýsingum um verðlag á nokkrum vinsælum hlutum og/eða afþreyingu í nokkrum yndislegum borgum heimsins og nú er röðin komin að hinni afar ljúfu indónesísku eyju Balí.
Ekkert er beint flug héðan alla leið til Balí og verður sennilega aldrei. Það merkir að það tekur tíma og drjúgar fjárhæðir að komast til Indónesíu alla leið af klakanum.
Það sem þú pungar út fyrir flugið og vesen sem því fylgir borgar sig upp á sirkabát 24 stundum eða svo. Gengi krónu gagnvart indónesískri rúpíu er þegar þetta er skrifað er ein króna mót 113 rúpíum. Sem á skiljanlegu máli merkir að fyrir þúsund krónur íslenskar færðu 113 þúsund rúpíur. Fyrir 136 þúsund rúpíur færðu þér vel að borða á hefðbundnum veitingastað FJÓRUM SINNUM. Eða ferð tvívegis í líkamsnudd ef því er að skipta.
Miðað við gengið í júlí 2021 er verðlag í hefðbundnum verslunum á Balí almennt 64 prósentum lægra en í verslunum í Reykjavík. Sem dæmi kosta vinsælar Levi´s gallabuxur rétt tæpar tvö þúsund krónur, vinsæl týpa af Nike hlaupaskóm rúmlega fjögur þúsund krónur og flott jakkaföt frá lúxusmerkjum þetta 20 þúsund og uppúr. Hér þó ágætt að hafa hugfast að á Balí sem víðast annars staðar í Asíu finnast markaðir sem selja „merkjavörur” fyrir klink og ingenting. Með öðrum orðum: falsvörur sem kosta lítið sem ekkert og eðlilegt er að prútta eins og enginn sé morgundagurinn.
Verðlag í verslunum almennt er þó hátt miðað við verð á mat. Á venjulegum götuveitingastað, og þeir flestir að bjóða upp á toppmat þó aðstaðan sé oft rúmfatalagersleg, færðu vel útilátna máltíð fyrir 200 krónur. Það svona sirka 90 prósent lægra en heima. Fjórréttað á flottum vinsælum veitingastað með víni fækkar krónunum í veskinu um þetta 2500 krónur eða svo. Það aftur 60-80 prósent lægra verð en í Reykjavík.
Gosdós eða bjórdós í verslun kostar um 70 krónur og hálfur líter af gosi eða bjór á bar eða veitingastað um 150 krónur. Þurfum ekkert að prósentureikna það miðað við heimalandið.
Ef þú ætlar að flakka aðeins um og nota almenningssamgöngur á borð við strætisvagna eða lestir verður þú aldeilis að taka feitt lán í Landsbankanum. Miðaverð heilar 25 krónur að meðaltali þó það fari eftir lengd ferðalags hverju sinni. Leigubílar algengir og þó margir svindli þá kemstu yfirleitt alla leið í helstu borgum og bæjum Balí undir 400 krónum. Þá færðu lítra af eldsneyti á 65 kall eða á 70 prósent lægra verði en heima ef þú ætlar að leigja bíl eða mótorhjól.
Svona ef þú vilt gera þig virkilega heimakomin og njóta langs tíma á vinsælum stöðum eins og Ubud eða Kuta og vilt leigja íbúð í mánuð verður þú aldeilis að leggja fyrir. Það mun kosta þig að lágmarki 20 þúsund krónur fyrir bærilega íbúð með helstu þægindum.
Sjálfsagt er að benda á að fólk verður sér úti um gistingu á Balí á allra, allra hagstæðasta verði með hótelbókunarvél Fararheill. Þann sparnað má nota til að kaupa enn meiri varning á Balí svona þegar sólin er búin að steikja þig í gegn 🙂




