É g hef ferðast með sömu ferðaskrifstofunni í fjórtán ár, fer alltaf á sömu slóðirnar og það stundum tvisvar á ári. Það bregst ekki að ég fæ alltaf afslátt af verðinu þegar ég bið um það.

Ef verslað er við sömu aðila ár eftir ár er barasta sjálfsagt að fara fram á afslátt.

Við hér hjá Fararheill komum af fjöllum þegar við fengum að vita að eldri hjón sem átt hafa viðskipti við sömu ferðaskrifstofu um áraraðir fá nær undantekningarlaust 15% afslátt af auglýstum ferðum en þó aðeins með því að óska eftir því við bókun.

Hér kominn stór plús við að eiga samskipti við alvöru manneskju á ferðaskrifstofu í stað þess að brúka netið til að gera og græja ferðir. Það fer enginn fram á afslátt gegnum vefinn en það er vel hægt á skrifstofunni hjá Úrval Útsýn, Heimsferðum, Vita, Bændaferðum eða öðrum stærri ferðaskrifstofum landsins.

Víst stendur í smáa letri flestra ofangreindra ferðaskrifstofa að aukagjald sé tekið ef bókað er gegnum skrifstofur fyrirtækjanna. Það kostar sitt og algengt að taka þrjú til fimm þúsund krónur aukalega fyrir slíka bókun per einstakling í ferð. En langsótt er að starfsfólkið gangi hart eftir þeirri greiðslu þegar í hlut eiga einstaklingar sem ferðast hafa með þeim um áraraðir. Ekki síst ef viðskiptavinurinn stendur á sínu og fer fram á það. Því ekkert er betra fyrir ferðaþjónustuaðila sem önnur fyrirtæki en fastakúnnar. Í þá verður að halda með öllum ráðum.

Það því sjálfsagt að spyrja næst þegar þú bókar ferð eða flug erlendis. Í versta falli færðu nei og þá er líka hægt að leita annað 😉