Hlutirnir vilja stundum ganga út í hreinar öfgar og undir það má flokka þær leiðir sem lággjaldaflugfélög mörg hver nýta sér til að græða aðeins fleiri seðla. Farið sjálft í boði hræódýrt en allt annað fokdýrt.

Þessi yrði í vondum málum með Ryanair sem tekur gjald fyrir allan farangur sem farþegar þess flugfélags ferðast með
Nú hafa spekingar breska blaðsins Daily Telegraph reiknað út að í mörgum tilfellum sé það ódýrara fyrir flugfarþega að bjóða með sér vini eða vinkonu en að greiða sérstaklega fyrir farangur. Það er að segja ef vinurinn er viljugur til að taka farangurinn þinn.
Þetta á reyndar einungis við í þeim tilfellum sem flogið er með Ryanair sem er sýnu dýrast þegar kemur að yfirvigt. Í vélum þess flugfélags greiðir farþegi fyrir allan farangur hvort sem það er handfarangur eður ei. Og sá er í vondum málum sem óvart pakkar sextán kílóum í stað fimmtán því umsvifalaust þarf þá að greiða litlar 22 þúsund krónur í stað tæplega fjögur þúsund króna.
En fyrir 22 þúsund krónur er hins vegar vel hægt að fá flugmiða með sama flugfélagi víða um Evrópu og nenni sá aðili að taka með sér fimmtán kíló af þínum farangri er hægt að spara skilding. Með þeim hætti sparar viðkomandi allt að tíu þúsund krónum sé miðað við allra ódýrustu fargjöld Ryanair.






