G röfin er ómerkt moldarhrúga á víðavangi og flestir gestir eiga í erfiðleikum með að finna staðinn þrátt fyrir Google Maps og alla þessa samfélagsmiðla.

Á skiltinu stendur ekkert um hver liggur í gröfinni heldur aðeins beiðni um styrk til að viðhalda þessum merkilega stað

Á skiltinu stendur ekkert um hver liggur í gröfinni heldur aðeins beiðni um styrk til að viðhalda þessum merkilega stað

En jafnvel þetta er of gott fyrir manninn hvers leifar liggja hér undir moldu. Þetta er gröf hins illræmda Pol Pot sem kemst kannski hvað næst því í sögu heimsins að vera illskan uppmáluð. Þessi yfirmaður Rauðu kmeranna er sagður hafa drepið yfir tvær milljónir landa sinna án þess að blikka auga  og marga þeirra á sem allra viðbjóðslegastan máta.

Gröfin er í grennd við smábæinn Anlong Veng og verður líkast innan tíðar vinsæll áfangastaður ferðamanna sem einhverra hluta vegna eru margir hverjir afskaplega hrifnir af myrkraverkum fortíðarinnar og þeim stöðum þar sem þau áttu sér stað. Hafa stjórnvöld ákveðið að koma bænum á kortið sem ferðamannastað en árið 2010 var heildarfjöldi erlendra ferðamanna hér aðeins tíu talsins allt árið að því er fram kemur í fregn AFP fréttastofunnar.

Margt fleira en ómerkta gröfina er að sjá í bænum þó óálitlegur sé. Þarna voru einar aðalbækistöðvar kmeranna lengi vel og hér í kring bjuggu þeir nokkrir sem hvað verstir þóttu í illvirkjum sínum fyrir þau samtök. Einnig eru hér opin skoðunar fyrir ferðafólk hús Pol Pots og margra hans helstu hershöfðingja. Best, eða verst, af öllu er að íbúar hér um slóðir voru allir sem einn á sínum tíma dyggir stuðningsmenn Pols og Kmeranna. Það gefur þessu svæði aukna vigt en neikvæða umfram aðra slíka staði í Kambódíu.


Sjá Grafreitur Pol Pot í Kambódíu á stærra korti