S tundum þarf maður bara að komast frá amstri og leiðindum hversdagsins. Stundum þarf næpuhvítur kroppurinn að fá smá sól eftir harðan vetur. Stundum þarf hugurinn að upplifa nýja hluti til að þroskast og njóta. Stundum þarf alls enga ástæðu til að flýja á nýjar slóðir?
Fararheill tekur þar fullum hálsi undir með víkingum til forna að heimskt er heimaalið barn. Sem vitaskuld merkir að sá sem aldrei fer neitt er ekki í stakk búinn til að læra og þroskast, lifa og þaðan af síður njóta.
Fyrir hina sem enn efast er óvitlaust að kíkja á myndband eins og þetta hér að neðan sem kannski kemur róti á hugarfylgsnin. Heimurinn er einfaldlega of stórkostlegur til að sjá ekki eins mikið af honum og nokkur kostur er meðan líf er í skrokki og heil hugsun í kolli. Myndbandið kallast Somewhere og er samantekt mynda úr náttúrunni og eins borgum og bæjum og er tilvalið til að kveikja sáran þorsta í ferðalög.




