Píramídarnir í Egyptalandi eru landsins mesta aðdráttarafl og munu verða það í næstu framtíð enda reyna nú Egyptar að koma þeim og Giza svæðinu til betri vegar en bæði stórvirkin og svæðið hafa látið töluvert á sjá á undanförnum áratugum.
Ekki er heiglum hent að komast inn í píramídana. Það er jú í boði en sökum ásóknar og fjölda ferðamanna sem um hituna berjast er ekki einfalt mál að verða sér úti um slíka miða. Aðeins takmarkaður fjöldi slíkra miða fer í sölu á hverjum degi. En ef þú kemst ekki í píramídann þá getur píramídinn komið til þín þökk sé þrívíddarútgáfu rússnesku sjónvarpsstöðvarinnar RTVI.
Þar er fléttað saman sjónvarpsmyndum og þrívíddartækni og fólki þannig gert kleift að sjá hvað liggur að baki þeim tonnum af grjóti sem píramídarnir eru smíðaðir úr en ýmsar kenningar eru enn á lofti um hvers vegna þeir voru byggðir og með hvaða hætti.
Taka þó flestir enn andköf yfir þeirri tækni og stærðfræði sem til þurfti til byggingar píramídanna á sínum tíma og yrði flókið verk að endurtaka með nútíma byggingalist.





