S em kunnugt er skulu allir er játa Múhammeðstrú og flokkast sem múslimar minnst einu sinni á ævinni heimsækja hina helgu borg Mekka og sýna þannig trú sína í verki því hér fæddist Múhammeð spámaður.

Mekka
Árlega koma til Mekka milljónir múslima að sýna Múhammeð spámanni hollustu sína og trú
Í Mekka búa 1,7 milljón manns en meðan á hajjinu stendur tvöfaldast sá fjöldi auðveldlega og reyndar gott betur því talið er að allt að sjö milljónir manna hafi heimsótt Mekka þegar mest var yfir hajj.
Eru reyndar tvær slíkar hátíðir árlega. Hajj er þeirra mikilvægari og kveður Kóraninn á um að hver múslimi sem getur ferðast til Mekka og séð fyrir fjölskyldu sinni á meðan skuli fara og heimsækja borgina ár hvert.
Hin hátíðin, umrah, fer einnig fram hér en ekki er lögð skylda á múslimi að fara þá pílagrímsferð ólíkt hajjinu.
Á þessu ljóðræna myndbandi má sjá traffíkina í og við Masjid al Haram þar sem trúarhátíðin sjálf fer fram. Ágætt að hafa þetta bak eyra næst þegar þú pirrast í jólaröðinni í H&M í Kringlunni.




