Af öllum þeim stöðum sem ég hef búið, og ég hef búið á mörgum heillandi stöðum, er enginn sem hefur gert mig jafn hamingjusaman og ég skilið við með jafn sárum söknuði eins og eyja heilags Péturs.“

Ile

Île de Saint Pierre fyrir miðri mynd á fallegri stundu við Bienne vatn. Mynd jd.echengard

Gróflega svona lýsti hinn frægi heimsspekingur, Jean-Jacques Rousseau, dvöl á smáeynni Île de Saint Pierre í allra síðustu bók sinni; Þungir þankar þrammara.

Eyjan sú sem stendur upp úr Bienne vatni, Lac de Biel, í vesturhluta Sviss hefur notið góðs af þeim fögru orðum sem Rousseau lét falla á sínum tíma en þar hefur ferðamennska lengi verið aðalatvinnuvegur margra á svæðinu enda sækja Svisslendingar sjálfir hingað í þúsundatali ár hvert.

Eyjan er þó ekki eyja lengur því virkjunarframkvæmdir lækkuðu yfirborð Bienne vatns svo mjög á sínum tíma að í ljós kom lítill skagi sem náði frá meginlandinu og alveg út í eyjuna fyrrverandi.