H eitari en andskotinn, þurrari en Martíni og vindar hér svo óútreiknanlegir að enginn veðurfræðingur fæst til starfa. Velkomin til Extramadura á Spáni.

Þrátt fyrir allt finnast staðir í Extramadura héraði Spánar sem eru grænir og fallegir. En slíkir staðir eru í minnihluta.
Þessa síðustu og verstu eru þeir fáir staðirnir sem ekki monta sig af hinu og þessu og yfirleitt einhverju fáránlegu sem ómögulegt er að sanna í stuttri ferð. Það vilja jú allir standa upp úr og heilla ferðamanninn vitandi að enginn heimtar bætur ef einn og einn staður lofar einhverju sem hann ekki getur staðið við.
Hafnarfjörður, sem dæmi, er jú Víkingabærinn og Álfabærinn og guð má vita hvað annað þetta mökkmengaða bæjarfélag montar sig af. Engar staðfestar heimildir eru þó hvorki um víkinga né álfa í bæjarfélaginu frá örófi alda.
Ólíkt Hafnarfirði eru þó staðir þarna úti sem lofa fögru og geta staðið við fullum hálsi. Staðir á borð við héraðið Extramadura á Spáni. Þar datt mönnum fyrst allra í hug að reykja papriku og ef reykt paprika hljómar ekkert spes þá breytist það ef þú rekur inn nefið á Paprikusafn héraðsins.
Safnið atarna heitir hinu fróma og þjála nafni Museo del Pimentón de Jaraíz de la Vera og húsakynni safnsins á besta stað í bænum. Hér má fræðast duglega um hvers vegna heimafólk tók upp á því á sjöundu öld að reykja papriku eins og við reykjum hangikjöt og hvers vegna það var barasta sallagóð hugmynd.

Ekki svo að skilja að safnið atarna sé eitthvað ómissandi stopp. Alls ekki. Þetta er lítið safn, munir einfaldir og helst áhugavert hversu margar mismunandi tegundir af reyktri papriku eru framleiddar á svæðinu.
En þú finnur þig í grenndinni þá kostar ekkert inn, safnverðir vel að sér og ágætir í tungumálum og fróðleikur um papriku aldrei skemmt nokkurn mann.




