H vassviðri, haglél og niðdimmur dagur. Hugurinn leitar á fjarlægar strendur þar sem veðrið er skárra, sjórinn hlýrri og sólin sjáanleg. Nema veskið er tómt, kreditkortareikningurinn fallinn á gjalddaga og vegabréfið útrunnið.

Góðar bækur bera mann auðveldlega hálfa leið út. Mynd Moyan Brenn

Góðar bækur bera mann auðveldlega hálfa leið út. Mynd Moyan Brenn

Það jafnast ekkert á við raunveruleg ferðalög á eigin skinni en við ofangreindar aðstæður er varla til neitt betra til að friða útrásartilfinninguna tímabundið en stórkostlegar ferðabækur. Þær bækur einmitt sem bera þig hálfa leið í huganum og jafnvel lengra en það.

Hér eru nokkrar bækur sem ýttu undir ævintýragirni ritstjórnar Fararheill.is og við mælum 100 prósent með:

♥  In Patagonia /Bruce Chatwin – Stórkostlega skrifuð bók um þvæling Chatwins um Patagóníu í Argentínu.

♥  Journey without Maps / Graham Greene – Fyndin og merkileg bók um ferðalag Greene til Líberíu árið 1935.

♥  Chasing the Monsoon / Alexander Frater – Frater kann að gera úrhelli í Indlandi einkar skemmtilegt.

♥  Great Railway Bazaar / Paul Theroux – Hverjum dytti í hug að lestarferðir gætu verið svona fróðlegar.

♥  Journey to Portugal / Jose Saramago – Einstakur rithöfundur beinir sjónum að eigin landi og með sínum afar sérstaka stíl að venju. Ýmislegt hér í landi sem fer of lítið fyrir.

♥  In Europe / Geert Mak  –  Ótrúlega fersk sýn á ferðir og þvæling um ýmsa staði álfunnar. Virkilega vel skrifuð og sett í skemmtilegt samhengi við atburði fyrri tíma.

♥  Running in the Family / Michael Ondaatje  –  Höfundur English Patient heldur á fornar slóðir á Sri Lanka/Ceylon og setur ýmislegt þar í samhengi með ljóðrænum og fallegum hætti.

♥  Midnight in Sicily / Peter Robb  –  Hvers vegna á mafían þessa eyju með húð og hári? Robb kafar djúpt í sál eyjaskeggja og varpar ljósi á fjölmargt sem við fyrstu sýn kemur undarlega fyrir sjónir aðkomufólks.

♥  Istanbul: Memories of a City – Orhan Pamuk  –  Nóbelsverðlaunahafinn fer með okkur í ferð um það sem hann kallar rústir Ottóman heimsveldisins. Rústir sem Pamuk glæðir lífi og litum af snilld.

♥  Soul Mountain / Gao Xingijan  –  Lífið í strjálbýlli þorpum og stöðum í Kína séð með augum þessa meistara sem grípur til skáldagyðjunnar af og til á bakpokaferðalagi sínu um landið.

Travels with Herodotus / Ryszard Kapuscinski  –  Firnavel skrifuð bók um þvæling þessa pólska meistara um Asíu og Afríku og allt setur hann í samhengi við fornar sögur svo úr verður meistaraverk.