[orbit]

F rá örófi alda, eða síðan farþegaflug hófst að ráði, hafa farþegar haft skoðun á því fólki sem starfar um borð í flugvélum. Þjónusta og framkoma flugþjóna skiptir miklu máli eins og sést best á því hve margir tjá sig um það á samfélagsmiðlum og einkunnavefum hvers kyns.

Allir virðast hafa skoðanir á þjónustu og liðlegheitum flugþjóna en það gleymist stundum að flugþjónar geta líka haft skoðanir á farþegum sínum. Með tilkomu samfélagsmiðla meira að segja hægt að gera meira en opinbera skoðanir. Það er hægt að sýna myndir.

Það hefur tekist framar vonum hjá bráðskemmtilegu bloggi sem haldið er úti af flugfreyju einni sem fékk sig fullsadda af fávísum farþegum með fáránlegar kröfur og alls kyns vitleysu um borð. Passenger Shaming heitir bloggið á fésbókinni og twitter og þar fá þeir farþegar á baukinn sem þykja ganga of langt í ruglinu og annað það ömurlega sem flugþjónar þurfa að fást við í flugi.

Fleiri myndir Passenger Shaming.