Þ ó tæp þrjátíu ár séu liðin síðan sjónvarpsserían um Twin Peaks tröllreið öllu í sjónvarpi landsmanna og í velflestum vestrænum löndum öðrum, er ennþá töluverður fjöldi fólks sem leggur leið sína til Twin Peaks til að sjá staðina í þáttunum með eigin augum.

Snoquilmie foss kann að virðast kunnuglegur. Hann lék líka aukahlutverk í Twin Peaks forðum daga. Mynd Pancheks
Okei, smá ýkjur. Það er enginn staður í Bandaríkjunum sem heitir Twin Peaks. En þættirnir voru sannarlega teknir upp í einhverjum smábæ eða bæjum og svo vel vill til, fyrir þá sem leggja leið sína til Seattle, að þeir staðir báðir eru aðeins í rúmlega hálftíma fjarlægð frá þeirri borg.
Raunveruleg nöfn þeirra eru North Bend og Snoquilmie. 90 prósent þess efnis sem tekið var upp utandyra fyrir þættina frægu voru tekin upp hér.
Það út af fyrir sig kann að virðast undarlegt enda gróðursælt og fallegt í þeim bæjum og ekki er mikinn gróður né landslag að sjá svona í fljótu bragði fyrir utan Seattle. En það gjörbreytist fljótlega enda Washingtonfylkið eitt hið allra vinsælasta til útivista í öllum Bandaríkjum.
Fararheill mælir með bílaleigubíl og léttum rúnti til beggja staða fyrir aðdáendur. Báðir staðir þokkalega stórir en umhverfi beggja fallegt og sérstaklega er Snoquilmie fossinn fallegur í návígi. Óvitlaust líka að negla gistingu í lúxushótelinu Salish Lodge við fossinn fyrrnefnda. Það hótel er hið fræga Great Northern hótel sem leikur stórt hlutverk í Twin Peaks.