H afi einhvern tíma verið vandratað í veröldinni þá var það þegar Afríka var lítt þekkt myrkraálfa og nú til dags þegar kófsreglur hvers lands fyrir sig breytast hraðar en Afganir flýja land sitt vegna trausts á yfirborðskenndum Bandaríkjamönnum.

Ástæða til að eiga viðskipti við Dohop á þessum kófstímum. Skjáskot

Víst höfum við hjá Fararheill stungið á nokkrum kýlum hjá ferðaveitunni Dohop gegnum tíðina. En eins og hið fornkveðna segir: fátt er svo með öllu illt…

Hér þrjár ástæður fyrir að EIGA VIÐSKIPTI við íslensku ferðaveituna:

A) DOHOP PROTECTION

Ólíkt öllum öðrum ferðasölum heims þá býður Dohop upp á svokallað Dohop Protection. Það merkir að ef þú ert að ferðast langa leið með tveimur eða fleiri flugfélögum og bókar þá ferðina gegnum Dohop tryggir fyrirtækið að þú komist alla leið HVAÐ SEM TAUTAR OG RAULAR. Dohop eina fyrirtæki heims sem býður slíka tryggingu. Ekki amalegt nú þegar hjartað slær 150 slög í hvert sinn sem skipta þarf um rellu ef vera skyldi að kófsreglur hafi breyst meðan þú varst í loftinu.

B) PÍNULÍTIÐ ANNT UM HEIMINN

Stöku flugfélög heims bjóða þér að kolefnisjafna flugferðirnar við bókun. En okkur vitandi er það einungis Dohop sem býður þér að kolefnisjafna flugferðir burtséð frá með hverjum þú ert að fljúga og hvert. Fyrirtækið auglýsir slíkt sérstaklega á borða rétt neðan við forsíðumyndina á vef sínum. Lítið skref vissulega í stóru myndinni í baráttunni gegn loftslagsvá en til mikillar eftirbreytni. Ungbarnaskref en þeim ber að fagna.

C) LÆGSTA VERÐIÐ FRAM Í TÍMANN

Það vita allir sem reynt hafa vef Icelandair, Finnair, Delta, Lufthansa eða Air France að manneskjan var fljótari að finna upp hjólið en finna lægsta hugsanlega verð á ferð með þessum flugfélögum fram í tímann. Dohop gerir það að leik einum; það er að segja ef þú vilt bara netta ódýra borgarferð í nóvember eða aðra leiðina til Norðurlanda nokkrar vikur fram í tímann.

Svo geturðu styrkt okkur hér hjá Fararheill og sjálfa, -n þig líka með því að brúka nífaldan heimsmeistara í hótelbókunum hér að neðan 🙂