Ekkert er betur fallið til að kynnast heimamönnum hvarvetna en að brúka þeirra eigin tungumál. Einu gildir hversu illa það er gert því bara að reyna vekur aðdáun flestra.
Hér eru nokkrar lykilsetningar á hollensku sem vert er að læra og henda út við tækifæri. Hver veit hvert það leiðir.
√ Halló: Helló
√ Þakka þér: dank u
√ Bless: tot ziens
√ Hvar er klósettið?: Waar is het toilet?
√ Áttu matseðil á ensku?: Hebt u een menu in het Engels?
√ Hvað kostar þetta?: Hoeveel kost dit?
√ Fyrirgefðu en ég tala ekki hollensku: Mijn excuses, ik spreek geen Nederlands
√ Getur þú hringt fyrir mig á leigubíl?: Kunt U voor mij een taxi bestellen?