Staðreyndin er sú að sífellt fleiri Íslendingar njóta þess að spila golf og smitast hefur fjöldi þeirra svo af þessari illskeyttu bakteríu að þeir geta ekki fyrir nokkurn mun lagt kylfum sínum einn vetur eða svo. Þá er þjóðráð að punga út fyrir golfferð erlendis þar sem grænar grundir bíða þó kafaldsbylur kæfi allt á klakanum.

Varmi á vanga og hola í höggi meðan Kári kæfir allt á klakanum. Mynd easywebsites.ky

Ritstjórn Fararheill.is er að byggja upp gagnagrunn þar sem ganga má að upplýsingum um alla golfvelli í nágrannalöndunum vísum. Sá verður birtur hér innan tíðar.