Ritstjórn Fararheill.is is farin að fá reglulega póst og fyrirspurnir ýmsar um margvíslega hluti tengda ferðalögum. Hingað til höfum við svarað prívat og persónulega en okkur finnst eðlilegra að deila því með öðrum ef vera skyldi að fleiri velti sömu hlutum fyrir sér.
Hér póstum við því spurningum í framtíðinni og reynum að svara eftir getu eða leitum til aðila sem svörin vita. Óhrædd að henda á okkur fyrirspurnum ef einhverjar eru á fararheill@fararheill.is
HELGA S. 17. ágúst 2011: Á ferðalagi með ferðaskrifstofu til Costa del Sol fyrr í sumar var í boði í upphafi að fara dagsferð til Tangier í Marokkó sem okkur hjónum fannst spennandi og fleirum í hópnum. Þegar við vildum láta skrá okkur í ferðina úti tjáði fararstjórinn okkur að það væri ekki ráðlegt enda ástandið þar slæmt gagnvart ferðafólki. Er þetta rétt og hvers vegna að hafa þetta í boði ef svo er?
FARARHEILL: Nei, þetta er ekki rétt! Það er ekki meiri hætta að heimsækja Tangier, eða aðra staði í Marokkó, nú en verið hefur undanfarin ár. Helsta hættan við Tangier er áreitni sem er þó öllu meira leiðinleg en hættuleg. Að þessu sögðu er þó alltaf hætta fyrir hendi í öllum löndum og vissulega hafa misyndismenn tvívegis drepið ferðamenn í landinu í sprengingum í Casablanca og Marrakesh. Þá hafa stöku ferðamenn verið rændir af mönnum vopnuðum hnífum í Tangier seint að kvöldlagi eða um nætur. En að hætta sé á einhverju við stutta dagsferð þar sem stoppað er í nokkrar klukkustundir yfir hádaginn er hreint og beint kjánalegt. Líklega hefur fararstjórinn viljað spara sér óþarfa vesen sem eðlilega fylgir að bjóða upp á slíkar dagsferðir til annars lands.
Sonja B. 10. júlí 2011: Hæ hæ. Ég er ein þeirra sem alltaf er illa bitin af moskítóflugum á ferðalögum. Nú er ég að fara til Kosta Ríka í lok ágúst að þvælast um í mánuð. Í apótekum er bara að finna einhver óskiljanleg krem og efni með innihaldslýsingum sem ég skil ekki og heldur ekki starfsfólkið. Einhver ráð?
FARARHEILL: Kosta Ríka er nálægt miðbaug og því gósenland moskítóflugna. Þar muntu verða bitin hvað sem þú reynir. Það er til fjöldi húsráða hvernig best sé að eiga við bitin sem eru jú algjör martröð fyrir utan hættuna á alvarlegri sýkingum. Aðalatriðið er að klóra alls ekki í bitin. Það er reyndar meira en að segja það. Klór framlengir pínuna því það ertir sárið og þá heldur líkaminn áfram að dæla mótefni á það svæðið kringum bitið. Bólga eftir bit er í raun bara líkaminn að einangra þau efni sem moskítóflugan skilur eftir sig eftir að hafa sogið úr þér blóð. Margir segja að gott sé að setja límband yfir sárið og láta það vera þar í nokkra tíma. Það linar ertingu og ætti að draga eitur úr sárinu þegar það er tekið af. Aðrir segja að roll-on svitalyktareyðir drepi alveg alla ertingu eftir bit en það er persónubundið. Enn eitt ráðið er að halda brennheitum þvottapoka yfir bitið í stundarkorn. Við það hverfur öll erting í nokkrar klukkustundir.
Björn Gunnar 5. október 2012: Hvaða möguleika á ég, að komast til Orlando í júlí 2013.
Við erum um 15 alls. Icelandair flygur ekki á þessum tíma eftir því sem mér skilst. Getur þú bent mér á hvað fólk gerir í þessu?
FARARHEILL: Takk fyrir skeytið. Þetta er ákveðin klemma því Icelandair hættir flugi þangað yfir háannatíma á sumrin. Það eru aðeins tvær leiðir í boði sem þurfa þó ekki að kosta svo mikið meira en er aðeins meira vesen.
Önnur leiðin er að fljúga til Boston eða NY og þaðan til Orlando eða Miami. Leitaðu sérstaklega að fargjöldum með Southwest eða JetBlue flugfélögunum en þau eru hvað best og ódýrust. Ellegar að leita á Dohop.is að ódýrasta fargjaldi milli Boston/NY til Orlando í júlí. Báðar leiðir ættu að fást kringum 20 til 30 þúsund og ef fargjaldið frá Íslandi fæst billegt sleppur það þó vesen sé. Þá er næsta öruggt að bandaríska flugfélagið Delta fljúgi hingað áfram næsta sumar og þeir fljúga til NY or frá NY til Orlando. Kannski er það einfaldari lausn því þá er hægt að tékka allar töskur beint til Orlando.
Hin leiðin er að kaupa ódýrt fargjald til London og fljúga þaðan beint til Orlando. Oft er hægt að gera ágæt kaup þar og ráð að kíkja á Flightcentre.co.uk svo dæmi sé tekið. Aftur þarf þó að skipta um vélar en bresku tilboðin eru oft góð og mögulega hægt að komast alla leiðina á svipuðu verði á mann og í beinu flugi. Í öllu falli er ekki komist með einföldum hætti til Orlando en mögulega á svipuðu verði.
William V. 8. september 2012: Ég er William Varadaraj frá Selfossi og þarf að finna ódýra flugmiða frá Íslandi til Cali í Kólumbíu frá Íslandi. Dagsetningarnar eru 15 desember frá Íslandi til Kólumbíu (Cali)
og 5. janúar frá Kólumbíu (Cali) til Íslands
Ég þarf ódýra flugmiða.
takk kveðjur
FARARHEILL: Sæll William. Rúmt ár er síðan einn úr ritstjórn Fararheill heimsótti Kólombíu og þurfti að flakka til Madríd á Spáni til að komast með ódýrasta hætti alla leiðina. Það var því beint flug héðan til Alicante, þaðan flug til Madríd og frá Madríd til Bogotá.
Það er ennþá ódýrasta leiðin til að komast þessa leið en þó aðeins ef þú finnur ódýrt fargjald til Spánar eða í versta falli ódýrt fargjald til London og þaðan kemstu alltaf ódýrt til Spánar.
Leitaðu á Dohop.com eða Momondo.com að hagstæðustu fargjöldum. Báðar leitarvélar góðar og báðar leita hjá lágfargjaldaflugfélögum þó reyndar þau fljúgi ekki til Kólombíu. Eins er hægt að fara með Icelandair til Denver og þaðan með flugfélaginu Frontier til Kólombíu. Það getur verið aðeins ódýrara.
Vona að þetta hjálpi