Siglingar um heimsins höf njóta vaxandi vinsælda víðast hvar í heiminum og ekki síst hér á Fróni. Ekki er flókið að finna út hvers vegna því siglingar eru í senn slakandi og ævintýrakenndar á sama tíma.
Um borð í velflestum betri skemmtiferðaskipum er gnótt valkosta í boði hvort sem fólk þráir frið og ró og útsýni til hafs, dúndrandi diskótek fram eftir nóttu, leik- eða danssýningar með rauðvín við hlið, sólböð út í hið óendanlega með reglulegu hoppi í allnokkrar sundlaugar eða hvað sem er annað.
Siglingar hafa verið síðustu árin sá angi ferðaþjónustu víða í heimi sem örast vex og ekkert útlit fyrir að það breytist.
Ritstjórn Fararheill.is vonar að upplýsingarnar hér nýtist áhugasömum vel.