Skip to main content
Tíðindi

Millilandaflug frá Ísafirði?

  15/04/2011nóvember 24th, 2014No Comments

Ef allt gengur eftir eru ágætar líkur til að fólk á Vestfjörðum geti flogið til framandi staða beint frá Ísafirði. Frumvarp um millilandaflug til og frá Ísafjarðarflugvelli fær jákvæðar umsagnir víða og er málið nú á borði innanríkisráðherra.

Helst er litið til farþegaflugs milli Ísafjarðar og austurstrandar Grænlands enda ber Ísafjarðarflugvöllur engan veginn stærri þotur og því yrði aðeins um smærri farþegavélar að ræða.

Engu að síður er Grænland ekki síðri áfangastaður en margir aðrir og ýmislegt bendir til að vinsældir ferða þangað færist í aukanna með hlýnandi loftslagi.