Þó það hljómi afkáranlega að fara yfir lækinn eftir vatninu þá er raunin einstöku sinnum sú að það getur borgað sig. Margborgað sig.
Dæmi um þetta má finna á flugleitarvef Dohop akkurat núna. Detti einhverjum í hug að skella sér til Kína til skrafs, ráðagerða eða yndis um miðjan ágúst eða svo má vel vera að sá leiti á næstu flugleitarvél að heppilegu flugi á sem allra lægsta verði.
Umræddur aðili vill bara beint flug en það gengur ekki þar sem ekki er flogið héðan til Kína þó fyrrum utanríkisráðherra Össuri Skarphéðinssyni dreymi um slíkar flugferðir.
Þá dytti einhverjum í hug að fljúga frá London. Þaðan er jú mun fjölbreyttara úrval flugfélaga að fljúga en til dæmis frá Kaupmannahöfn eða París. Sé því flett upp hjá Dohop.is fæst þetta hér:
Til Kína er sem sagt ekki komist í beinu flugi frá London um miðjan ágúst undir 203 þúsund krónum eða svo. Það er allhátt verð og kannski of hátt verð. Hvað gera bændur þá? Hætta við? Leita meira?
Viðkomandi lætur sig hafa lengri leit og skoðar flug frá París, Frankfurt, Amsterdam og Helsinki. Allt kemur fyrir ekki. Flugið til Kína fæst ekki undir 160 þúsund krónum fram og aftur. Viðkomandi sem var að vonast eftir flugi kringum hundrað þúsund krónur leggur árar í bát og hættir við allt saman.
Verst að þessi tilbúni einstaklingur kunni ekki voða vel að leita á netinu og varð því af því sem eru sennilega einhver hagstæðustu flugfargjöld til Kína um nokkurra ára skeið og í boði núna. Fram og aftur til Hong Kong, Peking, Guangzhou, Xiamen, Wuhan, Chengdu eða Shanghai fyrir 78 þúsund krónur miðað við gengi dagsins.
Með þessu erum við aðeins að benda á þörfina á þolinmæði ef finna á ferðir eða flug langt út í heim á verði sem gerir þér ekki bumbult. Þolinmæði og sveigjanleika eins og fjöllistamenn í sirkus. Aðeins þannig sparar fólk þúsundir, tugþúsundir og jafnvel hundruð þúsunda króna á ferðalögum.