E igendur San Alfonso del Mar lúxushótelsins í Algorrobo í Chile hugsuðu stórt þegar þeir ákváðu að setja eins og eina sundlaug við hótelið.
Ákváðu þeir að koma þar fyrir stærstu sundlaug heims. Sundlaug sem er heill kílómetri á breidd og þekur litlar 20 ekrur. Það þrátt fyrir þá staðreynd að aðeins í 10 metra fjarlægð er þessi eðalfína strönd og hlýr sjór Kyrrahafsins.
Eðli málsins samkvæmt er nokkuð rúmt um mannskapinn sem hér leggur sig til sunds en laugin er það stór að auðveldlega er hægt að sigla þar heilu seglskútunum ef svo ber undir.
Notast er við saltvatn úr sjónum og er 26 gráðu hiti í lauginni öllum stundum. Það er engu að síður aðeins sex gráðum heitara en sjórinn sjálfur við ströndina svo kannski er þarna farið langt fyrir skammt.
Sé hugur til að prófa eina dýfu eða svo má skoða hér að neðan hvað gisting hér kostar. Þetta er þó lúxushótel og líklega þarf að safna einhverjum seðlum til að njóta lífs hér.