Þó skíðaferðir séu almennt dýrar hefur vaxandi fjöldi Íslendinga valið slíkan kost yfir vetrartímann. Ekki síst helgast það af slæmu árferði hérlendis enda snjór svo sjaldséður síðustu veturna að það þykir forsíðufrétt ef fjöll verða hvít.

Ritstjórn Fararheill.is hefur tekið saman lista yfir alla helstu og bestu skíðaáfangastaði og gerir þér valið auðvelt með að flokka staðina eftir ýmsum leiðum.

Góða ferð.