Það vita allir sem reynslu hafa af lengri göngu- eða ævintýraferðum að öllu máli skiptir hvað taka ber með sér og hvað ekki. Sú ákvörðun getur stundum skipt sköpum því aðeins þaulvant fólk getur borið þungar byrðar lengri leiðir meðan nýliðar annaðhvort gefast upp ellegar henda ýmsu úr poka sínum þegar þreytan fer að segja til sín. Það verður því ekki nógsamlega brýnt fyrir fólki sem hyggst leggja í slíka ferð að pakka eins vel og létt og mögulegt er. Eðlilega skiptir lengd og hitastig máli þegar pakka á fyrir lengri ferð. Tvennt ólíkt er að pakka fyrir lengri göngutúra um strandlengju Tyrklands en hátt uppi í Ölpunum.

Starfsfólk Fararheilla þekkir gönguferðir vel á eigin skinni og mælir með að eftirtalið sé haft í huga áður en lagt er í hann.

Lágmarkið fyrir lengri ferðir:

  • Góðan nýlegan bakpoka
  • Svefnpoki en sá verður að taka mið af aðstæðum. 40 gráðu frostpokinn sem þú keyptir hjá Hjálparsveit skáta fyrir nokkrum árum mun kæfa þig úr hita á farfuglaheimili í Buenos Aires.
  • Svefnmottu.
  • Tvo stuttermaboli úr gerviefnum og tvær léttar stuttermaskyrtur.
  • Flísjakka eða flíspeysu.
  • Góðan regnjakka.
  • Nælon buxur (helst sem snúa má við).
  • Undirföt úr gerviefnum.
  • Húfu eða hatt.
  • Plastyfirbreiðslu.
  • Stuttbuxur sem ná niður að hnjám.
  • Baðföt.
  • Sterka sandala.
  • Góða gönguskó sem búið er að ganga til eða sterka iþróttaskó.
  • Góða sokka.
  • Stórt rakadrjúgt handklæði.
  • Sjóveikistöflur.
  • Niðurgangstöflur.
  • Græðandi krem.
  • Sólvörn
  • Flugnabana.
  • Blautþurrkur.
  • Varasalva.
  • Kvensnyrtivörur
  • Rakvél
  • Vatnshreinsitöflur.
  • Lítið saumakit
  • Nælur.
  • Þvottaklemmur.
  • Peningabelti.
  • Vasahníf.
  • Vasaljós.
  • Nælonspotta (5 – 10 metra).
  • Ruslapoka.
  • Ziploc poka fyrir verðmæti.
  • Lás.
  • Vatnsflösku.
  • Myndavél og linsur.
  • Straumbreyti.
  • Ljósrit af vegabréfi.
  • Létt tjald (sé um slíka ferð að ræða).
  • Eldspýtur eða kveikjari.
  • Prímus og potta til að elda.