Skip to main content

Fyrr í dag sögðum við frá tilboði Wow Air til Berlínar en gátum þess ekki að fyrirtækið er einnig með Alicante, Barcelóna og Mílanó á tilboðsverði til miðnættis. Nú fæst önnur leiðin á 17.900 krónur og vandséð að ódýrara verði að komast til þessara borga frá Íslandi.

Fleiri tilboð Wow og nú til Barcelóna, Alicante og Mílanó

Fleiri tilboð Wow og nú til Barcelóna, Alicante og Mílanó

Við vildum ganga úr skugga um að Wow Air væri raunverulega með slík tilboð í boði á fleiri en einni dagsetningu eins og oft er raunin með slík tilboð.

Það reyndist sannarlega vera til allra borganna en það besta við tilboð þessi eru að þau gilda fyrir ferðir í sumar.

Skemmst er frá að segja að það er töluvert af sætum í boði á ýmsum tímum í júní, júlí og ágúst til þessara þriggja borga og flug til baka fæst á sama verði.

Það þýðir að ef fólk sleppir töskum, sem greiða þarf extra fyrir, er hægt að kaupa far fram og til baka fyrir 36.700 krónur. Það er skrambi góður díll þessa síðustu og verstu en til samanburðar má finna fargjöld með Wow á svipuðum dagsetningum allt upp í 50 þúsund krónur aðra leiðina.

Heimasíða Wow hér.