V ískí er áhugamál hjá fjölmörgu fólki þarna úti og auðvitað eru Skotland og Írland mekka þess drykkjar á heimsvísu. Það væri allavega mjög eðlilegt að álykta sem svo. En Svíar, af öllum, hafa nú skotið Skotum og Írum ref fyrir rass í þessum efnum.
Mörg okkar þekkja hinar finnsk-sænsku eyjur sem saman kallast Álandseyjur. Öllu færri kannast við Öleyju sem er tiltölulega stór eyja úti fyrir borginni Kalmar á suðausturströnd Svíþjóðar. Alveg hreint ágæt eyja eins og flestar þær sænsku en kannski ekki á radarnum hjá aðkomufólki mikið. Það er þó hér sem sænska konungsfólkið eyðir sumrum sínum og segir það sína sögu.
Orðspor Öleyju breyttist aðeins á þarsíðasta ári þegar fært var opinberlega til bókar, og það Heimsmetabókar Guinness hvorki meira né minna, að lítið hótel hér byði heimsins mesta úrval af viskítegundum til sölu. Nánar tiltekið 1179 mismunandi tegundir þess merka drykkjar.
Hotel Skansen, eða bara Skansinn, heitir staðurinn og er ljúft, lítið hótel sem ekki virðist merkilegri en önnur hótel hér séð utanfrá. En taktu skrefið inn og vitnaðu hillur eftir hillur sem svigna undan tæplega tólf hundruð mismunandi tegundum af viskí.
Hreint makalaust með öllu og klárlega nauðsynlegt stopp fyrir alla sem elska drykkinn atarna ef þeir eiga leið um Svíþjóð á næstu misserum eða árum. Gættu þess bara að dvölin verði nógu löng því ýmislegt þarf að prófa og einhverjir timburmenn gætu fylgt í kjölfarið.