Ekki fyrr hefur maður látið út úr sér að allt sé nú til í henni Ameríka en upp kemur eitthvað nýtt sem ekki var til í henni Ameríku. Nú auglýsir fimm stjörnu lúxushótel í San Díegó í Kaliforníu nóttina á 19$ eða sem nemur 2400 krónum en það er 23 þúsund krónum ódýrara en hefðbundið verð.
En á tilboðinu er stór og mikill hængur. Það er ekkert í herberginu nema tjald! Hótelið er sem sagt að bjóða nóttina í svítu sem er tóm. Búið er að fjarlægja allt niður í klósettpappírinn og aðeins lítið tveggja manna tjald situr eftir á gólfinu.
Fréttastofan Reuters hefur eftir forstjóranum á Rancho Bernando Inn að með þessu sé hann að gefa fólki tækifæri að gista á staðnum sem ella hefði ekki efni á því en afar vandséð er hvernig það svarar kostnaði að tæma herbergin fyrir vikið. Vandséð er einnig hverjum finnst það ævintýri að gista á fimm stjörnu hóteli í tjaldi.
Hér er heimasíða hótelsins ef þú vilt kanna málið.