Hvað í ósköpunum viljum við upp á dekk
Hvað er Fararheill
Að baki Fararheill stóðu upphaflega fjórir ferðelskir einstaklingar sem öll fengum þá vöggugjöf að betra væri að eyða tíma og peningum í ferðalög en eignir og hluti. Okkur langar að taka minningar með okkur í gröfina enda lítið pláss fyrir annað.
Nú erum við þrjú eftir en ástæða þess að við höldum Fararheill úti er þríþættur. Í fyrsta lagi finnst okkur ferðamarkaðurinn hér afskaplega aftarlega á merinni miðað við hvað þegnar nágrannalandanna hafa um að velja. Í öðru lagi er verðlag ferða hérlendis í engum takti við neitt. Í þriðja lagi langar okkur bara að deila með ykkur okkar reynslu.
Öll skrif hér taka mið af persónulegri reynslu og við fjöllum ekki um neitt sem við höfum ekki prófað á eigin skinni. Við leyfum okkur líka hiklaust að hafa skoðanir á hlutunum. Annað er bara meðalmennska enda fer fjarri að allir staðir, borgir eða lönd séu sköpuð jöfn.
Komdu með okkur í ferðalag.