Komið að stóru stundinni. Fyrsta safaríferðin framundan og í allri tilhlökkuninni gleymdist algjörlega að taka með sér helstu nauðsynjar.
Eftirtalið er ómissandi sért þú eða fjölskyldan að leggja í fyrstu ferð ykkar á afrísku sléttunum. Hér er allt talið með hvort sem um er að ræða tveggja stunda akstur á sléttum Serengeti í Kenía eða vikutúr í veiðilendum Okavango í Botswana. Heilbrigð skynsemi segir þó að varla er þörf á tveimur nærum við tveggja stunda túr nema magakveisa sé mann að drepa og þá er betur heima setið.
- Léttar buxur
- Stuttbuxur
- Tvær langerma peysur
- Tvær stutterma peysur / boli
- Létta yfirhöfn
- Regnjakka
- Gönguskó / íþróttaskó
- Nærföt og sokka til skiptanna
- Hatt eða buff yfir fölbleikt höfuðið
- Klósettpappír
- Tannbursta og tannkrem
- Næga skammta af öllum lyfjum
- Flugnasprey
- Sólvörn
- Myndavél með öflugri linsu
- Sjónauka
- Vasaljós eða kyndil
- Handklæði
- Svefnpoka
- Skilríki