Skip to main content
Tíðindi

Heimsferðir bjóða flug til Billund

  22/11/2011desember 6th, 2014No Comments

Ferðaskrifstofan Heimsferðir auglýsir nú beinar flugferðir til Billund í Danmörku í sumar og býður nú fyrstu sætin þangað á sérstöku tilboðsverði.

Kostar flugið aðra leiðina 13.900 krónur fyrir þá sem fyrstir panta en fyrsta ferðin verður farin þann 23. maí og verður flogið einu sinni í viku fram í byrjun september.

Verða þannig þrír aðilar um hituna til Billund næsta sumarið; Iceland Express, Icelandair og nú Heimsferðir en það er Primera Air sem sér um að ferja farþega ferðaskrifstofunnar. Sami eigandi er að Primera og Heimsferðum.

Samanburður ritstjórnar leiðir í ljós að 13.900 króna tilboð Heimsferða er besta verðið eins og sakir standa. Icelandair býður lægst aðra leiðina á 18.180 krónur og Iceland Express er dýrast á 20.330 krónur.

Heimasíða Heimsferða hér.