Skip to main content

Það er ýmislegt á sig lagt til að komast í tæri við kvenfólk. Í ljós hefur komið að tveir öryggisverðir á alþjóðaflugvelli Denver gerðu sér að leik lengi að tilkynna um bilun í öryggisskönnum í hvert skipti sem álitlegur kvenmaður var næstur í röðinni í því skyni að framkvæma persónulega líkamsleit.

Vægast sagt mikið sem miður fer við öryggisgæslu á flugvöllum vestanhafs. Mynd pixshark

Vægast sagt mikið sem miður fer við öryggisgæslu á flugvöllum vestanhafs. Mynd pixshark

Klárlega djobb sem Donald Trump væri fær um ef hann hefði ekki fæðst með gullskeið í munni og greindarvísitölu á við mosa.

Kannski kannast einhver íslenskur kvenmaður við þukl og káf við öryggishlið í Denver þar því þangað hefur verið flogið héðan um nokkra hríð.

Upp komst um kauða eftir að einn samstarfsmaður tilkynnti yfirmönnum um að óeðlilega miklar bilanir væru í þeim skanna sem félagarnir störfuðu við. Aldrei fannst þó nein bilun en við frekara eftirlit kom í ljós að tvímenningarnir voru sjálfir að valda „biluninni“ og alltaf varð bilun þegar föngulegur kvenmaður var á leið í gegn.

Vart þarf að taka fram að báðir fengu sparkið med det samme.