Skip to main content

Fararheill sagði lesendum sínum frá því í gær að ferðaskrifstofan Heimsferðir hefði auglýst flugsæti til Salzburg sem ekki væru svo í boði á vef fyrirtækisins. Það er alls ekki eina tilboð ferðaskrifstofunnar sem hvergi finnst við leit.

Engin innistæða fyrir frábæru flugtilboði til Kaupmannahafnar hjá Heimsferðum.

Engin innistæða fyrir frábæru flugtilboði til Kaupmannahafnar hjá Heimsferðum.

Í nýjum haust- og vetrarbæklingi Heimsferða er að finna meðfylgjandi auglýsingu um flugsæti til Billund og Kaupmannahafnar frá 9.900 krónum. Sannarlega frábær tilboð nema sá gallinn að engin flugsæti eru í boði til Kaupmannahafnar og þaðan af síður niður í 9.900 krónur.

Sannarlega finnast ferðir aðra leiðina til Billund niður í 9.900 krónur eins og lofað er og er það vel enda mjög gott verð.

En hvar er Köben? Forvitnissímtal til ferðaskrifstofunnar vegna þessa skilaði þeim upplýsingum að svo ódýr flugsæti til Köben yrðu ekki í boði. Ekki er hægt að leita hófa hjá ábyrgðarmanni bæklingsins enda enginn sem virðist bera ábyrgð á útgáfunni.

Ofangreint flokkast sem villandi og ólögmætir viðskiptahættir af hálfu fyrirtækis og er lögbrot ef rétt er að engar ferðir til Köben á auglýstu verði verða í boði þennan veturinn.