Ný úttekt Fararheill hjá þeim þremur aðilum hérlendis sem bjóða okkur gott úrval bílaleigubíla á erlendri grund sýnir að verðlag er mjög upp og niður hjá öllum aðilum og sannarlega hægt að spara með því að framkvæma verðsamanburð áður en bíll er bókaður.
Aðilarnir sem um ræðir eru Dohop, Wow Air og Icelandair en fyrir ekki svo margt löngu reyndist Icelandair undantekningarlítið bjóða lægsta verð yfir línuna á bílaleigubílum. Fyrirtækið enn mjög samkeppnishæft en töluvert dregur saman.
Við leituðum að þremur bíltegundum á þremur mismunandi dagsetningum í Alicante á Spáni og leituðum samtímis hjá öllum þremur aðilum. Skemmst frá að segja að allir eru vel samkeppnishæfir og ekki er ýkja mikill verðmunur á milli en hvers vegna að henda þúsundköllum á glæ þegar svo einfalt er að gera verðsamanburð á örfáum mínútum?
* Úttekt framkvæmd kl. 14.40 þann 17. nóvember 2018. Leitað í júní á næsta ári að lægsta verði á minnsta fáanlega bíl, í júlí að bíl í millistærð og í ágúst í jeppa/jepplingaflokki. Sama/svipuð þjónusta í öllum tilvikum.
[alert type=alert]Fararheill hefur ítrekað bent á að spara má miklar fjárhæðir erlendis ef ferðast er utan háannatíma í júlí og ágúst.[/alert]