Sautján árum eftir að bandarísku flugvélaframleiðandinn Boeing hóf framleiðslu á Boeing 777 vélum sínum fór vél númer eitt þúsund úr verksmiðju framleiðandans í Seattle fyrr í dag. Engin farþegaþota hefur selst jafn vel á jafn skömmum tíma.
Er þetta stór áfangi fyrir Boeing sem alls hefur framleitt sex útgáfur af 777 vél sinni. Þær eru stærstu tveggja hreyfla þotur sem framleiddar hafa verið og farþegarýmið tekur allt að 300 farþega í það mesta.
Ekkert bendir til að áhugi kaupenda á vélinni sé að minnka þó bæði Boeing sjálft, Airbus og fleiri framleiðendur hafi komið fram með nýrri vélar síðan 1995 þegar 777 kom fyrst á markaðinn. Flugfélagið Emirates notar hvorki fleiri né færri en 102 slíkar vélar í dag og útistandandi er pöntun fyrir 97 slíkar í viðbót.
Ekkert íslenskt flugfélag hefur notað 777 vélina þar sem þær þykja of stórar og grófar á eldsneytið enda eru þær hannaðar fyrir lengra flug alla jafna en helstu áfangastaðir íslensku flugfélaganna. Getur vélin enda flogið rúmlega sautján þúsund kílómetra á fullum tönkum í besta falli.